Lagalegir fyrirvarar
Lagalegir fyrirvarar
Fyrirvari vegna tölvupósts
Sá sem fyrir tilviljun, mistök eða án sérstakrar heimildar fær tölvupóst (og viðhengi hans) frá Blikk hugbúnaðarþjónustu hf. ber að fara að ákvæðum 4. mgr. 88. gr. laga um fjarskipti nr. 70/2022 og er vinsamlega beðinn um að gæta fyllsta trúnaðar. Viðtakandi er beðinn um að hvorki lesa, skrá, afrita né notfæra sér efni póstsins á nokkurn hátt og tilkynna Blikk hugbúnaðarþjónustu hf. samstundis um að hann hafi ranglega borist sér. Þá er þess vinsamlega óskað að viðkomandi eyði öllu efni tölvupóstsins. Tilkynningar skulu berast á netfangið: eftirlit(att)blikk.tech
Fyrirvari vegna vefsvæðis
Blikk hugbúnaðarþjónusta hf. leitast við að hafa allar upplýsingar og tilvísanir á vefsvæði sínu réttar og í samræmi við nýjustu útgáfur og uppfærslur. Blikk ábyrgist þó ekki að upplýsingarnar séu ávallt réttar og kunna upplýsingar sem þar koma fram að breytast án fyrirvara.
Blikk ábyrgist ekki að upplýsingar sem birtar eru frá þriðja aðila séu réttar eða löglegar né ábyrgist vörur eða þjónustur frá þriðja aðila þó þær séu birtar á vef Blikk.
Blikk ber ekki ábyrgð á tjóni sem hlotist getur vegna galla eða bilunar í vél- eða hugbúnaði sem tengjast vefsvæði Blikk, vafra eða stýrikerfi notanda, tengingu við veraldarvefinn eða af öðrum þeim orsökum sem kunna að valda stöðvun eða rofi á þjónustu Blikk, s.s. villur í gögnum eða truflanir í rekstri tölvukerfa.
Blikk ber ekki ábyrgð á tjóni sem verður rakið til óviðráðanlegra ytri atvika (e. Force majeure) t.d. viðskiptahamlana, flutningsskaða, eldsvoða, farsóttar, verkfalla, náttúruhamfara, stíðsástands, hryðjuverka eða annarra atvika sem stafa af stjórnmálalegum, fjármála- eða efnahagslegslegum atburðum sem kunna að koma í veg fyrir eða valda rofi á þjónustu Blikk.
Blikk áskilur sér rétt á að rjúfa aðgang að vefsvæði Blikk og/eða upplýsingum um stundarsakir fyrirvaralaust ef þörf krefur vegna viðhalds og endurbóta á þjónustu Blikk, vegna uppfærslu á öryggisráðstöfunum o.þ.h.
Framangreint á einnig við um allt efni sem Blikk setur inn á samfélagsmiðla eins og Instagram, Facebook, Twitter o.fl.
Hugverkaréttindi
Vefsvæði Blikk og allt innihald þess þ. á m. útlitshönnun, vörumerki, hugbúnaður, ljósmyndir, ritstýrt efni og annað ótiltekið efni eru hugverk Blikk og varið samkvæmt höfundar- og vörumerkjalögum á Íslandi og annars staðar. Allt innihald vefsvæðis blikk er eign Blikk hugbúnaðarþjónustu hf., kt. 530922-1620, Lágmúla 9, 108 Reykjavík.
Öll dreifing, endurútgáfa eða rafræn afritun af innihaldi vefsvæðisins, hvort heldur sem er að hluta eða heild, er óheimil.
hafðu samband
Ekki hika við að senda okkur línu ef þú ert með spurningar eða athugasemdir!
Við svörum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er.
hafðu samband
Ekki hika við að senda okkur línu ef þú ert með
spurningar eða athugasemdir!
Við svörum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er.